Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 293, 152. löggjafarþing 154. mál: loftferðir (framlenging gildistíma).
Lög nr. 135 30. desember 2021.
Þingskjal 293, 152. löggjafarþing 154. mál: loftferðir (framlenging gildistíma).
Lög nr. 135 30. desember 2021.
Lög um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998 (framlenging gildistíma).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða V í lögunum:- B-liður 1. mgr. orðast svo: Skyldu flugrekanda/umráðanda loftfars til að tilkynna löggæsluyfirvöldum hér á landi, innan tilgreinds tíma, um nafn farþega, vegabréfsnúmer og flugnúmer, enda hafi farþegi ekki forskráð sig eða framvísað tilskildu vottorði eða staðfestingu skv. a-lið.
- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Skyldu flugrekanda/umráðanda loftfars til að upplýsa farþega um afleiðingar þess ef farþegi hefur ekki forskráð sig eða framvísað vottorði eða staðfestingu skv. a-lið.
- 2. mgr. fellur brott.
- Í stað orðanna „einstakling eða lögaðila fyrir brot“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: flugrekanda/umráðanda loftfars ef hann brýtur.
- 9. mgr. orðast svo:
2. gr.
Lög þessi taka þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 28. desember 2021.